Gæðastefna Vegagerðarinnar
Gæðastefnan byggir á heildarstefnu og gildum Vegagerðarinnar. Með gæðastefnu leitast Vegagerðin við að uppfylla kröfur, óskir og væntingar vegfarenda og annarra hagsmunaaðila í samræmi við hlutverk sitt.
Gæðakerfi Vegagerðarinnar nær yfir alla starfsemi stofnunarinnar.
Tilgangur gæðakerfis Vegagerðarinnar er að tryggja:
- Að unnið sé eftir þeim lögum og reglum er stofnunina varða
- Að unnið sé eftir samræmdu verklagi sem Vegagerðin setur sér
- Að frávik séu uppgötvuð og úrbætur framkvæmdar
- Að stuðla að stöðugum umbótum í öllum rekstri Vegagerðarinnar
- Að stuðla að því að rekstur Vegagerðarinnar sé traustur, markviss, gagnsær og rekjanlegur
Útgáfudagur á vef: 14.6.2022